Rasmus s’échappe de l’orphelinat où il a grandi et rencontre le vagabond Oskar lors de son errance dans la campagne suédoise pendant l’été.
Rasmus er munaðarlaus. Hann býr á barnaheimili þar sem gilda strangar reglur þó að stundum sé að vísu gaman. Þar býr líka Gunnar, besti vinur hans. En auðvitað væri skemmtilegra að eiga foreldra. Af og til koma barnlaus hjón á munaðarleysingjahælið og velja sér barn. En þau velja alltaf stúlkur með krullur, ekki drengi með slétt hár. Rasmus skilur að ef hann á einhvern tímann að eignast foreldra verður hann að taka málin í sínar hendur. Hann strýkur. Strax á fyrsta degi kynnist hann landshornaflakkara sem gistir í sömu hlöðu og hann sjálfur. Rasmus afræður þá að slást í för með honum og hefst nú ævintýralegt ferðalag þeirra félaga.
dansk
Deutsch
svenska
Norsk bokmål
suomi
Magyar
English
français
Íslenska