Diljá, Janus og Teitur eru öll tuttugu og eitthvað. Diljá byrjar í draumanáminu sínu í leiklist í LHÍ. Janus fær vitjanir frá tólf ára útgáfu af sjálfum sér. Teitur fer að efast um sambandið sitt.
Diljá fær ritstíflu þegar hún kemst að því að það er stutt í einstaklingsverkið hennar. Janus fær nóg af túristum í starfi sínu sem leiðsögumaður. Teitur fær sýndarveruleikagleraugu. Ofan á þetta þurfa þau öll að tækla verstu spurningar allra tíma: „Hvernig ertu? Hvað ertu að gera?“
Diljá reynir að samtvinna skóla, vini og ástina. Janus reynir að kaupa lauk. Teitur reynir að tala við pabba sinn.
Diljá fer á djammið. Janus fer á djammið. Teitur fer á djammið.
Diljá sýnir lokaverkið sitt. Janus sýnir hvernig maður lifir lífinu með núll krónur inni á bankabók. Teitur kynnir nýju kærustuna fyrir fjölskyldu sinni.
Þáttur Sex