Hekla byrjar í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík tveimur vikum eftir skólasetningu. Draugar fortíðar banka upp á.
Snædís verður vitni að alvarlegu atviki. Verðmætu silfri er stolið úr Hússtjórnarskólanum og Hekla liggur strax undir grun.
Hekla er farin að kunna vel við sig skólanum þegar hún fær slæmar fréttir. Hún fær ekki að hitta dóttur sína.
Hekla fær að hitta dóttur sína í fyrsta sinn síðan hún kom úr meðferð. Það lifnar í gömlum glæðum.
Hekla þarf að taka mikilvæga ákvörðun. Hún fær dóttur sína í heimsókn án eftirlits og er ekki viss um að hún ráði við það.
Önninni í Hússtjórnarskólanum er að ljúka. Hekla þarf að gera upp við sig hvort hún ætlar að vera áfram föst í gamla farinu og hagræða sannleikanum eða gangast honum á hönd.