Hafþór Gestsson starfaði sem fangavörður í nær fjóra áratugi og hafði áhrif bæði á fanga og aðra fangaverði með einstakri nærveru og sýn sinni á starfið. Helga Rósa Hansdóttir hefur starfað sem sjúkraliði á vökudeild í rúma þrjá áratugi. Þar hefur hún veitt hræddum og örþreyttum foreldrum fyrirbura og viðkvæmum nýburum ómældan stuðning og hjálp í gegnum árin.
Við kynnumst þeim Stefáni Helga Stefánssyni og Sesselju Magnúsdóttur sem skipuleggja heimsóknir til heilabilaðs fólks og gleðja það með söng. Við hittum einnig Rakel Evu Sævarsdóttur sem vaknar eldsnemma tvisvar í viku allan ársins hring til þess að þjálfa og hvetja annað fólk til að hreyfa sig án þess að taka krónu fyrir.
Í þættinum hittum við Örvar Þór Guðmundsson sem hefur safnað tugum milljóna til hjálpar bágstöddum á undanförnum árum. Við kynnumst einnig Margréti Brandsdóttur sem hefur, með einstökum metnaði og gleði, eflt unga iðkendur í Knattspyrnufélaginu FH.
Í þessum þætti kynnumst við Sigurþóru Bergsdóttur, sem notaði sína eigin sáru reynslu af því að missa son sinn til þess að hjálpa öðrum ungmennum í vanda, þegar hún stofnaði Bergið - Headspace. Við hittum líka Bjartmar Leósson sem hefur á undanförnum árum fundið hundruð stolinna reiðhjóla og komið þeim í réttar hendur.
Dýravinurinn Guðfinna Kristinsdóttir stofnaði samtökin Dýrfinnu sem sérhæfa sig í að leita að týndum dýrum. Arnar Gunnar Hjálmtýsson opnaði áfangaheimili eftir að hafa kynnst því í gegnum son sinn hversu mikill skortur er á úrræðum fyrir fólk sem langar að komast út í lífið á ný eftir að hafa villst út af beinu brautinni.
Við kynnumst félagsfræðingnum Ragnheiði Sverrisdóttur, eða Jonnu, sem brennur fyrir málefnum þeirra sem minna mega sín í samfélaginu og gengur ávallt skrefinu lengra til að hjálpa þeim sem á þurfa að halda. Við hittum einnig Örlyg, sem hefur undanfarin ár heiðrað náttúruna með því að plokka nokkur tonn af rusli og verið innblástur fyrir aðra til að hreinsa í kringum sig.