Hannes Oddsson skipstjóri segir frá því hvernig það atvikaðist að hann hóf að taka dóttur sína, Guðnýju Rósu, með til sjós. Hann var farmaður og sigldi með skreið og annan varning til Evrópu og Afríku. Guðný Rósa segir frá þessum ferðalögum út frá ljósmynd sem tekin var af henni með föður sínum á dekkinu.
Á ljósmyndinni sem fjallað er um sjást tvær ungar konur í leðurjökkum með gríðarmikla hárkamba dansa á Rykkrokki í Fellahelli 1987. Petra Björk Pálsdóttir segir frá tilefninu, aðdraganda þess að hún og vinkona hennar, Þórgunnur Eyfjörð Pétursdóttir, klæddust eins og pönkarar og frá pönkmenningunni á Akureyri.
Á ljósmyndinni sem fjallað er um sjást tveir bændur kyssast á munninn í leitum árið 1948. Þetta var siður gangnaforingja og var kallað stórkoss. Barnabörn mannanna tveggja, þau Ólöf Sigurðardóttir og Jón Gíslason, segja frá öfum sínum.
Á ljósmyndinni sem fjallað er um situr myndlistarkonan Róska, Ragnhildur Óskarsdóttir, á kaffihúsinu Austurbar ásamt Andrési Kolbeinssyni ljósmyndara. Borghildur, systir Rósku, tók myndina og segir frá tildrögum þess að hún var með systur sinni á Austurbar.
Ljósmyndin sem fjallað er um er af Gunborgu Kristinsson að sippa fyrir framan heimili sitt á Akureyri árið 1963. Eiginmaður Gunborgar, Gunnlaugur P. Kristinsson, tók myndina. Dætur þeirra, Ásdís og Kristín Gunnlaugsdætur, rifja upp þennan atburð og það sem gekk á í lífi fjölskyldunnar á þessum tíma.