Auður Guðbjörnsdóttir býr á bænum Búlandi sem stendur við beljandi Skaftá, efst í austanverðri Skaftártungu. Á þessum slóðum hafa stærstu náttúruhamfarir Íslandssögunnar rutt bæjum og breytt landi í árþúsundir. Auður lýsir hvernig er að búa á svo stórri og víðáttumikilli bújörð og sýnir okkur þá stórbrotnu náttúru sem landareignin hefur að geyma. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndarann og ævintýramanninn Chris Burkard um jörðina.
Halldór Kristjánsson býr á bænum Stíflisdal í Bláskógabyggð. Þar setur tilkomumikill fjallahringur svip á landslagið og fossar, gil, vötn og ár prýða jörðina. Halldór segir frá lífinu í sveitinni og sýnir okkur perlurnar í nágrenninu. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndarann og ævintýramanninn Chris Burkard um sveitina.
Arndís Guðmundsdóttir býr á Bjarnastöðum við Hvítársíðu í Borgarfirði. Þar hefur fjölskylda hennar búið í meira en 140 ár. Arndís á sér uppáhaldsstað sem leynist í aldagömlu, mosavöxnu hrauni og á fáa sína líka á Íslandi. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um sveitina.
Víðir Hólm Guðbjartsson er síðasti bóndinn í Ketildölum. Hann býr á bænum Grænuhlíð, sem stendur í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum. Dalurinn er gróinn með skeljasandsstrandlengju, en ofar eru skriður svo brattar og hömrum girtar að erfiðar eru yfirferðar. Víðir segist hvergi annars staðar vilja vera og fer með okkur á þann stað sem að hans mati er sá fegursti á allri jarðarkringlunni. Að lokum fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um dalinn.
Helga Björg Ingimarsdóttir býr á bænum Höfnum, nyrst á Skaga. Bærinn stendur við ysta haf og er jörðin rík af fuglalífi og sel, sérkennilegum klettamyndunum og náttúrufegurð. Helga Björg segir náttúruna vera ástæðuna fyrir því að hún settist þarna að. Auk þess er náttúrugimsteinn á landareigninni þar sem hún getur setið tímunum saman og hlustað á fuglana og öldugjálfrið. Þá fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um Hafnir.
Svandís Sverrisdóttir sleit barnsskónum í Papey og ólst þar upp hjá afa sínum. Eyjan er úti fyrir Hamarsfirði á Austurlandi og var eina byggða eyjan á austurströnd Íslands þar til hún fór í eyði fyrir nokkrum áratugum. Svandís sýnir okkur Papey, segir frá lífinu í eynni á árum áður og fer með okkur á þann stað sem hún hefur ljósmyndað oftar en nokkurn annan. Þar að auki fer bandaríski ljósmyndarinn og ævintýramaðurinn Chris Burkard með Láru út í Papey.