Spár um framtíðina hafa yfirleitt reynst rangar. Á tímum kalda stríðsins var því haldið að almenningi að framtíðina væri að finna í geimnum, en með upplýsingatækni urðu áherslurnar nánast þveröfugar. Einstaklingurinn og nærumhverfi hans hefur aldrei haft jafn mikla þýðingu og nú. En svo gæti það líka snúist við.