Tólf skipbrotsmenn náðu ekki að komast í björgunarbáta þegar flutningaskipið Dísarfell sökk á milli Íslands og Færeyja 9. mars 1997. Þeir urðu að láta fyrir berast í miskunnarlausum öldum Atlantshafsins innan um gáma og brak og svartolíu í þeirri von að þeim yrði bjargað. Tveir menn fórust í slysinu. Í þessum fyrsta þætti af Útkalli ræðir Óttar Sveinsson við Ingva Hallgrímsson og Valdimar Sigþórsson tvo af skipbrotsmönnunum og Benóný Ásgrímsson þyrluflugstjóra sem bjargaði þeim.
Stígandi ÓF 25 frá Ólafsfirði sökk árið 1967 lengst norður í íshafi. Um borð voru tólf Íslendingar, þeir komust um borð í gúmmíbáta og þar voru þeir búnir að vera í fimm daga áður en þeirra var saknað. Í þessum þætti ræðir Óttar við Bjarna Frímann Karlsson, einn skipbrotsmannanna.
Litlu mátti muna að þyrlan TF-LÍF lenti í sjónum við björgun á átta mönnum af danska varðskipinu Triton, en zodiacbáti þeirra hvolfdi í foráttubrimi þegar þeir voru á leið að Wilson Muuga, flutningaskipi sem strandað hafði við Hvalsnes. Í þessum þætti af Útkalli ræðir Óttar við tvo úr áhöfn þyrlunnar þá Auðun Kristinsson og Hörð Ólafsson.
Í nýjasta þætti Útkalls er fjallað um þá fjórða stærsta flugslys sögunnar þegar Leifur Eiríksson, DC-8 vél Loftleiða, brotlenti í myrkri og rigningu í skóginum skammt frá Colombo á Sri Lanka í nóvember árið 1978. 262 voru um borð, þar af 13 Íslendingar – allt Loftleiðafólk. Fimm þeirra komust af. Verið var að flytja indónesíska pílagríma frá Mekka til heimalands síns. Þættirnir eru framleiddir af Heiðari Aðalbjörnssyni.
Sjö skipverjar björguðust þegar að Steindór GK 101 strandaði undir þverhníptu hamrastálinu við Krísuvíkurberg 20. febrúar 1991. Framleiðandi Útkalls er Heiðar Aðalbjörnsson.
Á jólanótt árið 1986 sökk íslenska flutningaskipið Suðurlandið á leið sinni til Murmansk. Óttar Sveinsson ræðir við einn skipbrotsmannana, Júlíus Víði Guðnason í þessum þætti af Útkalli. Hann og fjórir félagar hans lifðu af ótrúlega vist um borð í hálfbotnlausum gúmmíbáti. Mennirnir stóðu í sparifötunum í sjó upp í hné og stundum klof í 14 klukkustundir á meðan beðið var eftir björgun. Sex félagar þeirra fórust. Heiðar Aðalbjörnsson er framleiðandi þáttana.
Gjafar VE 300 strandaði í foráttubrimi fyrir utan Grindavík í febrúar 1973. Skipverjarnir börðust upp á líf og dauða á meðan hugrakkir félagar í björgunarsveitinni reyndu að bjarga þeim. Í þessum þætti af Útkalli ræðir Óttar við Guðjón Rögnvaldsson, einn skipbrotsmannanna, konu hans Ragnheiði Einarsdóttur og Margeir Jónsson sem var í hópi björgunarsveitarmanna. Heiðar Aðalbjörnsson er framleiðandi þáttana.
Eldur kviknaði í flutningaskipinu Goðafossi í október 2010. Skipið var þá statt í fárviðri í Atlantshafinu mitt á milli Íslands og Færeyja. Í þessum lokaþætti þessarar þáttaraðar af Útkalli ræðir Óttar Sveinsson við Nikulás Halldórsson, fyrrum skipstjóra á skipinu og Einar Örn Jónsson, stýrimann. Heiðar Aðalbjörnsson er framleiðandi þáttana.
Magnaðar lýsingar fólks sem lifði af snjóflóðin í Neskaupstað árið 1974 þar sem tólf manns fórust.
Í sjö stiga frosti lifðu tveir fáklæddir menn af í tvær og hálfa klukkustund í sjónum milli lands og Eyja (2002).
Illa slasaður beið Kristján Guðmundsson í tíu og hálfa klukkustund eftir björgun þegar sjö manna farþegavél hrapaði í Ljósufjöllum 1986. Hann og björgunarmenn lýsa atburðinum.
Tíu menn áttu ekki von á að þeim yrði bjargað þegar miskunnarlaust brimið kastaði Barðanum GK utan í klettana á Snæfellsnesi. Þá kom til kasta þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.
Farþegar og björgunarmenn sem lentu í og komu að tveimur flugslysum sama daginn á Mosfellsheiði árið 1979 lýsa ótrúlegum atburðum.
Þegar Sæbjörg VE strandar nálægt Höfn í Hornafirði árið 1984 horfast tólf menn í augu við dauðann áður en björgunarmenn sýna mikið snarræði.
Átta björgunarsveitarmenn frá Dalvík óttuðust um líf sitt þegar þeir þurftu að grafa sig í snjóhús í glórulausu hríðarveðri og 20 stiga frosti í 1.250 metra hæð þeirra var saknað og mikil leit gerð að þeim.
Tveir íslenskir sjómenn og þrír félagar þeirra lögðu á flótta á fiskibáti þegar skip með sjóræningjum lagði upp að hlið bátsins er þeir voru á leið til Kamerún.