Home / Series / Vegur að heiman / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Farendur - hvert er fólk að flytja?

    • October 14, 2024
    • RÚV

    Heiða Guðný Ásgeirsdóttir ákveður að flytja þvert yfir landið en getur ekki tekið kindurnar með sér. Við hittum Heiðu Guðnýju á Ljótarstöðum í Skaftártungu og svo ári síðar í Sveinungsvík rétt við Raufarhöfn. Við hittum einnig nemendur í framhaldsskólanum á Laugum sem flytja mörg hver tvisvar sinnum, landshorna á milli, áður en þau verða tvítug. Við kynnumst Lydíu Egilsdóttur og Inga Þór Þorsteinssyni sem fluttu frá Reykjavík til Hveragerðis og drógu óvænt tvær fjölskyldur með sér. Við hittum líka Gretu Lietuvninkaité og Justas Suscickis frá Litáen sem fluttu til Vestfjarða til að vera í nokkra mánuði en eru þar enn – sjö árum síðar.

  • S01E02 Leiðin að betra lífi – af hverju flytur fólk?

    • October 21, 2024
    • RÚV

    Valdís Hrönn Berg Ingudóttir og Ómar Smári Jónsson láta draum verða að veruleika með því að flytja til Spánar. Við hittum þau í Hafnarfirði og svo nokkrum mánuðum síðar á nýja heimilinu þeirra á Spáni. Við kynnumst tónlistarkonunni Markétu Irglova frá Tékklandi sem semur tónlist sína á Seltjarnarnesi með útsýni yfir Sundin. Við göngum um Bolungarvík – sem reynir að draga til sín fleiri íbúa svo þeir verði fleiri en þúsund og kynnumst Karólínu Elísabetardóttur sem flutti húsið sitt með sér í fjöllin – en hún vill hvergi frekar eiga heima.

  • S01E03 Höfum við alltaf val?

    • October 28, 2024
    • RÚV

    Bjarni Rúnarsson stendur á tímamótum og er að máta sig við kúabú fjölskyldu sinnar. Við hittum hann þegar hann er ekki alveg tilbúinn að taka af sér hatt fjölmiðlamannsins og svo aftur ári síðar. Við kynnumst líka fjölskyldu í Breiðholti sem flutti til höfuðborgarinnar til að tryggja að allir í fjölskyldunni fengju menntun og félagslegar þarfir sínar uppfylltar. Við hittum Pedro Rodrigues sem fylgist með ferðum farfugla á Melrakkasléttu og flutti sjálfur frá Azor-eyjum til Raufarhafnar. Og við siglum með Stíg Stígssyni heim í Hornvík.

  • S01E04 Fólk á flótta

    • November 4, 2024
    • RÚV

    Svitlana og Tymofii Pylypenko eru tvö af tæplega fimm þúsund Úkraínubúum sem hafa flúið stríðið til Íslands. Þau vildu komast sem lengst frá átökunum. Við hittum þau þegar þau eru nýkomin til landsins og svo aftur ári síðar. Við kynnumst Denis Grbic sem flúði stríðið í Júgóslavíu sem barn og við hittum Najlaa Attaallah frá Gaza sem þurfti að vera fjarri börnum sínum í ellefu mánuði til að tryggja þeim öruggt líf. Við sláumst einnig í för með hópi fólks frá Venesúela sem vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins á meðan þau bíða afgreiðslu umsókna sinna um vernd hér á landi.

  • S01E05 Fólk sem býr við og flýr náttúruvá

    • December 2, 2024
    • RÚV

    Magni og Svanhildur hafa hvert vor og haust í átján ár flutt um þrjú hundruð metra á milli húsa á Ísafirði þar sem heimili þeirra er á snjóflóðahættusvæði. Við flytjum með þeim – tvisvar. Við kynnumst Adólfi Sigurgeirssyni sem flutti til Grindavíkur eftir að hafa flúið gosið í Heimaey. Við bökum makkarónur með Vincent Cornet í Vík í Mýrdal, en íslensk náttúra er honum innblástur, og við hittum Harald Björn Halldórsson sem horfði á eftir skriðu hrifsa margra ára vinnu og heimili hans á Seyðisfirði.

  • S01E06 Þegar hjartað ræður för

    • December 9, 2024
    • RÚV

    Íris Birgisdóttir hefur staðið úti í rokinu í fimm ár. Hún vinnur að því að gera upp Framnes, hús úr sem var í eigu fjölskyldunnar, og leyfir landinu um leið að næra sig á meðan hún vinnur úr mikilli sorg. Við hittum hana svo aftur á tímamótum – þegar hún og dóttir hennar Anna eru að flytja inn. Við hittum ljóðskáldið Jakub Stachowiak sem elti ástina á íslenskunni til Íslands, við förum til fjalla og hittum flakkarann Lindu Ársælsdóttur sem virðist þrífast best í köldu loftslagi og fallegri náttúru. Og að lokum hittum við hjónin Herdísi Önnu Jónsdóttur og Steef van Oosterhout og heyrum sögu af heimþrá.