Home / Series / Veiðikofinn / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Þingvallaurriðinn

    • May 20, 2018
    • RÚV

    Í fyrsta þætti Veiðikofans setja veiðibræðurnir Gunnar og Ásmundur Helgasynir markmiðið hátt og halda að Þingvallavatni til að veiða ísaldarurriðann, konung íslenskra ferskvatnsfiska. Þeir byrja á því að fylgjast með urriðadansinum í Öxará undir stjórn Jóhannesar Sturlaugssonar og halda svo til veiða - án þess að kunna nokkuð til verka.

  • S01E02 Háfurinn

    • May 27, 2018
    • RÚV

    Í öðrum þætti Veiðikofans vill Gunni gefa Ása færi á að veiða loksins stærri fisk en hann og fara þeir því á háfaveiðar í Þykkvabæjarfjöru. Bráðin verður elduð af landsliðskokki svo ekkert ætti að fara úrskeiðis með eldamennskuna. Hvernig smakkast háfur? Slær Ási metið hans Gunna?

  • S01E03 Fjallableikja

    • June 3, 2018
    • RÚV

    Nú er ferðinni heitið upp á miðhálendið. Eftir ráðleggingar í sjoppunni halda bræðurnir til veiða í Frostastaðavatni inni á Landmannaafrétt þar sem þeir renna fyrir bleikju, en fá svo óvæntan leynigest í heimsókn. Í kaffipásunni skjótast þeir á Háafoss, einn hæsta foss landsins, til að skoða staðbundinn urriða og komast að því hvort hægt er að veiða undir svo háum fossi.

  • S01E04 Sjóbleikja

    • June 10, 2018
    • RÚV

    Sjóbleikjan þykir einn allra besti matfiskur sem kostur er á og bræðurnir freista þess að fanga þennan ljúffenga fisk. Áfangastaðurinn er Önundarfjörður, þar sem áin er tær, veðrið gott og ströndin hvít. Aflinn er síðan eldaður á býsna nýstárlegan hátt.

  • S01E05 Lax

    • June 24, 2018
    • RÚV

    Bræðurnir kunna nú heldur betur að veiða lax og þurfa því engar ráðleggingar frá öðrum í þetta sinn - eða hvað? Nokkrar valinkunnar laxveiðiár eru heimsóttar og inni á milli fluguveiðinnar skjótast þeir í Þjórsá til að kynna sér þá aldagömlu veiðiaðferð að leggja net.

  • S01E06 Sjóstangaveiði

    • July 1, 2018
    • RÚV

    Nú fer Veiðikofinn vestur á firði til að kynna sér sjóstangaveiði. Gunnar og Ásmundur dorga af bryggjunni í Bolungarvík og fara svo á kajak út á Skutulsfjörð að renna fyrir skötu. Að lokum er aflinn eldaður og bræðurnir syngja inn í nóttina.