Gunnar Karl tekur á móti Dóra á flugvellinum á Akureyri og þeir félagar fara á heimaslóðir Gunnars á Norðurlandi. Þeir fara meðal annars á Öngulstaði, Hauganes, Siglufjörð og Velli í Svarfaðardal og gæða sér á kræsingum hvar sem þeir koma. Á Völlum ákveða þeir að blása til veislu fyrir nágrannana í gamla fjárhúsinu.
Í þessum þætti fljúga Dóri og Gunnar Karl til Egilsstaða og koma meðal annars við í Neskaupstað á leið sinni á Borgarfjörð eystra. Á áfangastað kíkja þeir á lundahótel, fara á kajak og sanka að sér matvælum úr nánasta umhverfi fyrir veisluna sem haldin er á gömlu steinbryggjunni.
Dóri og Gunnar Karl fljúga vestur á Ísafjörð og leggja hluta Vestfjarða undir fót. Þeir fara um Önundarfjörð þar sem þeir fá ferska hörpuskel, kíkja á Þingeyri og halda veglega grillveislu á Flateyri.
Í þessum þætti keyra Gunnar Karl og Dóri frá Reykjavík í átt að Suðurlandi, koma á áhugaverða staði, hitta fólk sem hefur frá miklu að segja og borða góðan mat. Þeir koma við í Hveragerði, á Selfossi og í Skálholti áður en þeir enda á Traustholtshólma þar sem Gunnar Karl og staðarhaldarinn Hákon matreiða nýveiddan lax í lítilli veislu.
Í lokaþættinum heimsækja þeir félagar Austfirði og keyra alla leið í Skriðuklaustur til að prófa margrómað hádegishlaðborð. Þeir koma einnig í Vallanes og á Seyðisfjörð þar sem þeir borða á einum besta sushi-stað landsins. Að lokum keyra þeir að Skálanesi þar sem þeir elda hreindýr á hóðum við frumstæðar aðstæður og halda litla veislu.
Gunnar Karl fær Sveppa með sér í ferð þvert yfir langið yfir vetrartímann. Þeir kynna sér stemninguna, hefðirnar og matinn sem einkennir íslenska aðventu á Norðurlandi.
Eru jól og áramót sama veislan eða tvær veislur sem renna saman í eina með skötu í forrétt? Gunnar Karl og Sveppi svara þessari spurningu. Þeir skiptast á jólagjöfum, fá sér skötu og eggjapúns og bjóða áramótafögnuð með góðum vinum í listasafni í miðborg Reykjavíkur
Gunnar Karl og Sveppi fara vestur á firði og taka þátt í þorrablóti í Baldurshaga á Bíldudal þar sem margar hendur hjálpast að við að undirbúa Þorrablótsveisluna. Hvaða matur er þetta, hvernig er hann búinn til og hvers vegna er hann ennþá borðaður? Er hægt að búa til ferskan þorramat og hvað verður um grænmetisæturnar?
Gunnar Karl og Sveppi halda á Snæfellsnesið til Kára á Rifi þar sem þeir ætla að halda páskaveislu. Á leiðinni koma þeir við hjá Ólínu á Arnastapa, Víði í Gröf og á Grundarfirði þar sem þeir gæða sér á ýmsum kræsingum. Á Rifi bíður þeirra svo það krefjandi verk að undirbúa hundrað manna veislu, uppfulla af ljúffengum mat, tónlist og góðum gestum.
Gunnar Karl og Sveppi halda austur á firði þar sem þeir bjóða góðum gestum frá Breiðdalsvík í villibráðarveislu til að fagna sumardeginum fyrsta.
Sverrir Þór og Gunnar Karl halda veislu í hinni rómuðu Flatey á Breiðafirði með dyggri aðstoð heimamanna og annarra sem þar dvelja. Hljómsveitin GÓSS er þar á meðal og aldrei að vita nema hún taki lagið í kvöldsólinni.
Hrísey er næsti áfangastaður Sverris Þórs og Gunnars Karls og þeir banka upp á hjá sveitungum í leit að hráefni fyrir veisluna. Þar er Gunnar Karl á heimavelli enda ættaður úr Eyjafirði. Saltfiskur frá fimmtu kynslóðinni, guðdómlegt krydd, 700 hænur, lögreglan í Hrísey og leynibar er bara brot af því besta sem Norðurland hefur upp á að bjóða. Já, og hver er þessi Sævar?
Vestfirðir eru stórfenglegir og þar má líka finna litlar perlur eins og eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi. Þangað hafa Sverrir Þór og Gunnar Karl ekki komið áður. Himnesk flatbaka, nornaseiður á Hólmavík, Gvendarlaug hins góða, dásamleg íslensk kirsuber og yfirgefin síldarverksmiðja á Djúpavík er meðal þess sem kemur við sögu. Gunnar Karl töfrar fram gómsæta fiskisúpu að mestu úr hráefni úr nærsveitum.
Það þekkja ef til vill færri hina Flateyna, Flatey á Skjálfanda, sem er næsti áfangastaður Sverris Þórs og Gunnars Karls. Veðrið leikur við þá félaga á leiðinni og þeir hlaða í matarkistuna sína fyrir veislu í stórbrotinni náttúrufegurðinni fyrir norðan.
Leiðsögumenn þáttarins fara til Heimaeyjar og Gunnar Karl passar upp á að Sverrir Þór endi ekki á nærbuxunum einum fara uppi á sviði í Herjólfsdal. Það gengur á ýmsu á leiðinni en þegar komið er á áfangastað taka Gísli Matt og fjölskylda á móti þeim eins og þeim einum er lagið. Á eyjunni grænu er skemmtilegt fólk, góður matur og ljúfir tónar. Svona á að halda veislu.