Home / Series / Blindur bakstur / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Rauð Flauelsterta

    • March 13, 2021
    • Sýn

    Fyrstar til að mæta í heimsókn til Evu Laufeyjar að baka í blindni eru þær Tobba Marínós og Júlíana Sara og verkefnið er rauð flauelsterta. En hvort er tilefnið brúðkaup eða barnaafmæli?

  • S01E02 Þriggja laga afmæliskaka

    • March 20, 2021
    • Sýn

    Eva Laufey fær þá Auðun Blöndal og Hjálmar Örn í heimsókn til að baka blint þriggja laga afmælisköku en strákarnir þurfa að passa upp á einbeitinguna því líkt og þeir munu komast að er ekki hættulaust að baka köku.

  • S01E03 Bollakökur

    • March 27, 2021
    • Sýn

    Það er sannkallaður ráðherraslagur í eldhúsinu hjá Evu Laufey þegar að þau Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir mætast til að skera úr um hvort þeirra bakar betri og flottari bollakökur.

  • S01E04 Oreo bomba

    • April 10, 2021
    • Sýn

    Söngvar óma í eldhúsinu hjá Evu Laufey þegar að þeir Friðrik Ómar og Jogvan mætast og láta á það reyna að baka þriggja laga Oreo bombu í blindni.

  • S01E05 Gulrótakaka

    • April 17, 2021
    • Sýn

    Gestir Evu Laufeyjar að þessu sinni eru þau Sverrir Bergman og Elísabet Ormslev sem glæða eldhúsið lífi þegar að þau reyna við að baka blint gulrótaköku.

  • S01E06 Sítrónubollakökur

    • April 24, 2021
    • Sýn

    Í þessum þætti mæta söngdívurnar og vinkonurnar Margrét Eir og Guðrún Gunnars í eldhúsið hennar Evu Laufeyjar. Verkefnið að þessu sinni er sítrónubollakökur með ítölskum marengs.

  • S01E07 Nakin kaka

    • May 1, 2021
    • Sýn

    BBQ-kóngurinn Alfreð Fannar Björnsson og skemmtikrafturinn Eva Ruza mæta í eldhúsið til Evu Laufeyjar í þessum bráðskemmtilega þætti. Verkefni kvöldsins er glæsileg vanillukaka með karamellukremi, skreytt í „naked cake“ stíl. Eldhúsverkin reynast Evu Ruzu dálítið erfið og hlutirnir eiga það til að hellast niður, en það kemur þó ekki í veg fyrir að keppendur og kynnir skelli í eitt rapplag þegar Sir Mix-a-Lot ómar í tækjunum.

  • S01E08 Þriggja laga rósakaka

    • May 8, 2021
    • Sýn

    Það er hörð barátta í lokaþætti Blinds baksturs þegar parið Sóli Hólm og Viktoría Hermannsdóttir mætast við bökunarborðið. Verkefnið er glæsileg súkkulaðikaka skreytt með smjörkremsrósum. Á meðan Viktoría glímir við sprautupokann í fyrsta sinn, geislar Sóli af sjálfstrausti og íhugar jafnvel að baka sína eigin brúðartertu. Úrslitin koma báðum keppendum algjörlega í opna skjöldu í þessum spennandi lokaþætti.

Season 2

  • S02E01 Barbie kaka

    • January 9, 2022
    • Sýn

    Birgitta Haukdal fer þáttavillt og „hringir í vin“ á meðan Herra Hnetusmjör þarf að setja sólgleraugun til hliðar til að gera barbíköku kvöldsins.

  • S02E02 Regnbogakaka

    • January 16, 2022
    • Sýn

    Eyþór Ingi og Katrín Halldóra sýna okkur afraksturinn þar sem regnbogakaka var tekin fyrir. Við minnum á að aðgát skal höfð í nærveru matarlitar!

  • S02E03 Marengsstafur

    • January 23, 2022
    • Sýn

    Gunnar Hansson og Sigurlaug Margrét baka einhverskonar útgáfu af marengsstaf og reyna að komast að því hvað mega vera margar eggjarauður í marengs.

  • S02E04 Einhyrningskaka

    • January 30, 2022
    • Sýn

    Krakkakviss stjórnendurnir Mikki og Begga sýna okkur þeirra útgáfu af einhyrningsköku. Það er gott að einhyrningar eru þekktir fyrir að vera sérstakir.

  • S02E05 Sænsk Prinsessuterta

    • February 6, 2022
    • Sýn

    Leikarahjónin Álfrún Helga og Friðrik Friðriksson spreyta sig á sænskri prinsessutertu og það kemur í ljós hvort þeirra ætti að halda sig í eldhúsinu heima.

  • S02E06 Kransakaka

    • February 13, 2022
    • Sýn

    Anna Svava og Steindi Jr. reyna við sína fyrstu kransaköku. Það er eins gott að þau hafi ennþá nokkur ár í að æfa sig fyrir fermingarveislur barnanna sinna.

  • S02E07 Brúðkaupsterta

    • February 20, 2022
    • Sýn

    Siggi Gunnars og Kristín Péturs sýna okkur brúðkaupstertur þar sem það skiptir ekki endilega máli þó maður gleymi einhverju í bakstrinum.

  • S02E08 Vatnsdeigsturn

    • February 27, 2022
    • Sýn

    Bylgjulestin Gulli Helga og Sigga Lund sýna listir sínar í bakstri þegar þær reyna að gera bolluturn í lokaþætti seríunnar.