Fjallað er um alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga, allt frá því Loftleiðir og Flugfélag Íslands hófu á árunum fyrir 1950 að nýta DC-4 flugvélar sínar til leiguverkefna víða um heim. Ameríkuflug Loftleiða markaði þáttaskil í sókn Íslendinga inn á alþjóðlegan samkeppnismarkað í áætlunarflugi. Í framhaldinu byggðist upp íslensk flugnýlenda í Lúxemborg sem vatt upp á sig með stofnun Cargolux. Flugfélag Guðna í Sunnu, Air Viking, varð fyrst íslenskra flugfélaga til að sinna pílagrímaflugi. Á grunni þess reis Arnarflug og síðar einnig Air Atlanta og Íslandsflug sem öll áttu eftir að verða umsvifamikil á alþjóðlegum leiguflugsmarkaði.