Íslensk flugnýlenda tók að byggjast upp í Lúxemborg um miðjan sjöunda áratuginn þegar hún varð lykilstöð Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu. Þegar Loftleiðir svo stofnuðu Cargolux árið 1970 með heimamönnum og sænsku skipafélagi fjölgaði verulega þeim Íslendingum sem settust að í Lúxemborg til að starfa við flugið.