Frægasti fjársjóður Íslandssögunnar er án efa silfrið sem talið er hafa verið í eigu Egils Skallagrímssonar. Ýmsar kenningar hafa orðið til um hvar Egill muni hafa falið silfrið en flestir telja það vera einhvers staðar í Mosfellsdal. Í þessum þætti skoða Sigurður og Viktoría söguna um þennan þekktasta fjársjóð Íslands og leitina að honum. Mun Sigurður finna fjársjóðinn með málmleitartækinu sínu? Var silfrið til eða er þetta bara goðsögn?