Home / Series / Gulli Byggir / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Stykkishólmur

    • September 13, 2014
    • Sýn

    Í þessum þætti er gamla sýslumannshúsið í Stykkishólmi gert upp. Húsið hefur gegnt ýmsum hlutverkum og hýst ýmsa starfsemi frá því það var byggt 1896. Nú vilja hjónin Ragnar Már og Þórný gera húsið að heimili fyrir sig og fjölskyldu sína.

  • S01E02 Árbær

    • September 20, 2014
    • Sýn

    Verkefnið að þessu sinni er að gera upp gamalt þvottahús í Árbænum hjá hjónunum Rakel og Konna, eina herbergið eftir í húsinu þeirra sem á eftir að taka í gegn Þau vilja fá meira nútímanlegan blæ en Rakel vill hins vegar halda aðeins í það gamla.

  • S01E03 Skerjafjörður

    • September 29, 2014
    • Sýn

    Hér fylgjumst við með öllu ferlinu hjá Grétari Sigfinni, knattspyrnumanni, reisa hús frá grunni í Skerjafirði. Hann vantaði hús fyrir sex manna fjölskyldu sína en eftir smá vangaveltur þá komst hann að því að það var í raun hagstæðara að reisa glænýtt hús frekar en að kaupa það tilbúið.

  • S01E04 Goðheimar

    • October 6, 2014
    • Sýn

    Hún Adda í Goðheimum vill fá meira skjól á svalirnar sínar. Húsið er frá 1960 og búið að gera upp margt en talsvert eftir sem þyrfti að gera upp. Svalahandriðið er ónýtt og mögulega ólöglegt þannig hún fær Þórhall Birgi, steinsmið, til að steypa nýtt handrið fyrir sig.

  • S01E05 Langagerði

    • October 13, 2014
    • Sýn

    Í þessum þætti er það glæsilegt hús í Langagerði hjá hjónunum Ólafi Sveini og Önnu Þóru sem er í aðalhlutverki. Þau vilja færa og stækka eldhúsið sitt, herbergið sem þau telja vera hjarta heimilisins. Að auki ætla þau að skipta um hitakerfi og setja hita í gólfið.

  • S01E06 Grafarvogur

    • October 20, 2014
    • Sýn

    Hjónin Bjarni og Elsa í Grafarvoginum vilja breyta einum palli af tveimur hjá sér í sólstofu. Til þess þurfa þau að rífa niður eldri pallinn og undirstöðurnar áður en sólstofuverkefnið hefst. Gulli fær einnig að heyra í þessum þætti hvernig er hægt að lækka rafmagnsreikninginn og hann heimsækir tvær konur á Akureyri sem vinna við að gera upp húsgögn.

  • S01E07 Dalvík - Fyrri hluti

    • October 27, 2014
    • Sýn

    Nú er komið að síðasta verkefni fyrstu þáttaraðar af Gulla byggi. Hér sjáum við breytingar á baðherbergi á Dalvík hjá hjónunum Aðalheiði. Baðherbergið þeirra hefur litið eins út frá því að þau keyptu það fyrir yfir þrjátíu árum. Nú hentar það þeim ekki vel þar sem Jóhann er nú lamaður á einni hlið líkamans vegna heilablæðingar og kemst ekki upp úr baðkarinu án aðstoðar.

  • S01E08 Dalvík - Seinni hluti

    • November 3, 2014
    • Sýn

    Hér höldum við áfram að fylgjast með baðherbergi þeirra Aðalheiðar og Jóhanns á Dalvík. Við sjáum að sjá lokaafurðina: baðherbergi sem hentar Jóhanni með sturtu og hornbaðkari.

Season 2

  • S02E01 Baðherbergi - fyrri hluti

    • August 22, 2016
    • Sýn

    Hér kynnumst við hjónunum Hulda og Gassi í Grafarvogi. Þau vilja gera upp baðherbergið sitt en eru í þeirri erfiðu stöðu að vera ekki alveg sammála um hvernig það eigi að líta út. Í þessum þætti sjáum við Gulla og Gassa rífa út allar gömlu innréttingarnar.

  • S02E02 Baðherbergi - seinni hluti

    • August 29, 2016
    • Sýn

    Við höldum áfram að fylgjast með framkvæmdum á baðherbergi hjá Gassa og Huldu í Grafarvogi. Við fylgjumst með þegar sturtubotninn er steyptur, gólfið flotað og þrátt fyrir smá mælingabras þá tekst að ljúka verkinu með glæsibragði!

  • S02E03 Framkvæmdir á 4. hæð - fyrri hluti

    • September 5, 2016
    • Sýn

    Hjónin Ester og Alli eru nýbúin að kaupa íbúð á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Þau vilja ná að gera íbúðina upp þannig hún henti þeim og þremur ungum dætrum þeirra, og ætla m.a. að færa eldhúsið og laga hættulegan stiga ásamt því helsta sem fylgir íbúðakaupum.

  • S02E04 Framkvæmdir á 4. hæð - seinni hluti

    • September 12, 2016
    • Sýn

    Hér sjáum við áframhaldið af framkvæmdum Esters og Alla. Að lokum fáum við að sjá lokaafurðina: nýjar innréttingar og hvítt og stílhreint útlit á íbúðinni.

  • S02E05 Baðherbergi- fyrri hluti

    • September 19, 2016
    • Sýn

    Gulli fer suður til kvikmyndagerðarmannsins Garúnar í Höfnum. Hún býr í eldgömlu húsi en það er hvorki meira né minna en hundrað ára gamalt. Helsta verkefnið er að laga baðherbergið, sem Garúnu þykir fremur ósmekklegt, en í þeim framkvæmdum kemur í ljós að baðherbergið morandi í myglu.

  • S02E06 Baðherbergi - seinni hluti

    • September 26, 2016
    • Sýn

    Hér höldum við áfram að sjá Garúnu tækla myglusveppinn heima hjá sér. Í lokin heyrum við í Garúnu og hún segir að heilsan er orðin töluvert betri eftir að hún náði að losa sig við mygluna.

  • S02E07 Silja Úlfarsdóttir

    • October 3, 2016
    • Sýn

    Ein hraðasta kona Íslands, Silja Úlfarsdóttir, fær aðstoð Gulla við að gera upp herbergi stráka sinna. Hún viðurkennir sjálf að hún er ekki feikilega handlaginn en sýnir heilmikil framför þegar litið er á lokaafurðin: tvö glæsileg barnaherbergi með Minecraft þema.

  • S02E08 Dísa og Biggi

    • October 10, 2016
    • Sýn

    Hér sjáum við hjónin, Dísu og Bigga í Gerðum, taka húsið sitt í gegn að utan. Það er gera upp flest en nú þarf að láta það líta vel út og laga þakið.

  • S02E09 Svarthamrar

    • October 17, 2016
    • Sýn

    Við lítum inn í nýju íbúð þeirra Hófí og Arnars. Þar þarf að taka allt í gegn, skipta um allt og laga. Meðal verkefnanna er að setja inn einangrun en hún var ekki í öllum veggjum þegar þau fengu íbúðina. Að lokum er íbúðin gjörbreytt með nýju eldhúsi og nýju baði.

  • S02E10 Hlíðargerði 14 - Fyrri hluti

    • October 24, 2016
    • Sýn

    Gulli lítur inn til Einars og Maríu í Hlíðargerði. Þau eru nýbúin að kaupa sér hús þar á góðu verði en með þeim skilyrðum að það þarf nánast að taka allt húsið í gegn og má segja að steypan verði það eina sem verður eftir. Þau vonast til að getað gert flest sjálf en sem betur fer er Einar er vélstjóri og handlaginn.

  • S02E11 Hlíðargerði 14 - Seinni hluti

    • October 31, 2016
    • Sýn

    Áframhald af húsi Einars og Maríu í Hlíðargerði. Hér sjáum við gluggaskipti, flot á gólfum og baráttu við raka og myglu. Hjónin viðurkenna að þetta hafi ekki gengið alveg eins og þau ætluðu sér en segja að þetta sé enn draumaheimili þeirra.

  • S02E12 Samantekt

    • November 7, 2016
    • Sýn

    Að þessu sinni er þátturinn þrískiptur. Fyrst heyrum við hvernig parket er gert upp og næst Gulli lítur við hjá Ómari Úlfi. Hann þarf smá aðstoð að ljúka við verkefni og vill lýsa upp horn á pallinum sínum. Að lokum heimsækir Gulli gamlar slóðir á Stykkishólmi, til Þórnýjar og Ragnarar úr fyrstu þáttaröð, en þau hafa sannarlega gert gamla sýslumannshúsið að heimili.

Season 3

  • S03E01 Hafnarfjörður

    • September 25, 2017
    • Sýn

    Hér í fyrsta þætti þriðju þáttaraðar lítur Gulli í húsið þeirra Gunna Helga og Björk Jakobs á Stekkjarhvammi í Hafnarfirði. Þau eru löngu búin að taka neðri hæðina í gegn og nú er kominn tími á efri hæðina.

  • S03E02 Mosfellsbær - fyrri hluti

    • October 2, 2017
    • Sýn

    Hús þeirra Sóleyjar og Gústafs í Mosfellsbæ tekið í gegn. Þau búa þar ásamt þremur sonum sínum en það þarf að aðlaga heimilið að þörfum yngsta sonarins, Steina, sem er fatlaður og notar göngugrind. Eins og húsið er núna þá kemst hann ekki um allt húsið og því um að gera að skella sér í framkvæmdir.

  • S03E03 Mosfellsbær - seinni hluti

    • October 9, 2017
    • Sýn

    Í þessum þætti höldum við áfram að fylgjast með framkvæmdum hjá Sóleyju og Gústafi. Lokaafurðin er stórglæsileg og veitir syni þeirra, Steina, mun meira sjálfstæði inn á eigin heimili.

  • S03E04 Hús í Miðvangi - fyrri hluti

    • October 16, 2017
    • Sýn

    Gulli lítur til Ásthildar og Kristins sem eru nýkomin heim frá Sviss. Þau hafa keypt sér einbýlishús í Hafnarfirði og langar að gera húsið að sínu og ljóst er að það er þörf á að taka það hressilega í gegn.

  • S03E05 Hús í Miðvangi - seinni hluti

    • October 23, 2017
    • Sýn

    Áframhald hús þeirra Ásthildar og Kristins. Hér er þakið lagað en í síðasta þætti kom í ljós að þakið fúið og ónýtt. Hjónin viðurkenna að þetta verkefni hafi verið stærra en þau bjuggust við en að lokum eru þau í skýjunum yfir draumaheimilinu.

  • S03E06 Þingholtsstræti - fyrri hluti

    • October 30, 2017
    • Sýn

    Hér kíkir Gulli til Gumma Árna en hann er mikill áhugamaður um að gera upp gamlar íbúðir. Verkefnið hans að þessu sinni er að breyta kjallaraherbergi í litna stúdíóíbúð og í þessum þætti sjáum við allt rifið út.

  • S03E07 Þingholtsstræti - senni hluti

    • November 6, 2017
    • Sýn

    Gummi Árna Heldur áfram að gera upp kjallaraherbergi og hér eru lagnir lagðar, nýtt gólf sett á og herbergið gert að heimili.

  • S03E08 Drápuhlíð - fyrri hluti

    • November 13, 2017
    • Sýn

    Hér kíkjum við til Jóhannesar Helga í Hlíðunum. Hann er tiltölulega nýbúin að kaupa íbúðina sína en hann keypti hana með því í huga að hann vildi breyta henni. Hann vill snúa íbúðinni gjörsamlega við og vill m.a. taka niður nokkra burðarveggi, stækka baðherbergið og færa eldhúsið.

  • S03E09 Drápuhlíð - seinni hluti

    • November 20, 2017
    • Sýn

    Áframhald framkvæmda hans Jóhannesar Helga. Hann viðurkennir að verkefnið hafi verið erfitt en eftir mikla samvinnu ýmissa iðnarmanna þá er hann mjög sáttur með lokaafurðina.

  • S03E10 Reykjanesbær

    • November 27, 2017
    • Sýn

    Gulli fer til Reykjaness til þeirra Önnu og Inga en þau ætla að taka húsið sitt í gegn. Húsið er æskuheimili Inga og þau keyptu eignina af foreldrum hans. Þetta var fullkomið þar sem langþráður Önnu var að kaupa gamalt hús og gera það að sínu.

  • S03E11 Brynjar og Anna Lísa á Refsstöðum í Borgarfirði - fyrri hluti

    • December 4, 2017
    • Sýn

    Gulli fer upp í sveit á Refstaði, í Hálsaveit, til bændanna Brynjars og Önnu Lísu. Þau gerðu upp húsið sitt þegar þau keyptu lóðina en núna ætla þau að breyta gömlu fjósi í íbúðarhúsnæði fyrir starfsmenn sína. Í þessum fyrri hluta er allt gamla rifið út og gert tilbúið fyrir það nýja.

  • S03E12 Brynjar og Anna Lísa á Refsstöðum í Borgarfirði - seinni hluti

    • December 11, 2017
    • Sýn

    Í þessum lokaþætti þáttaraðarinnar höldum við áfram að fylgjast með Brynjari og Önnu Lísu breyta gömlu fjósi í íbúðarhúsnæði.

Season 4

  • S04E01 Sandra Bræðraborgarstíg

    • August 26, 2019
    • Sýn

    Í þessum þætti fylgjumst við með endurbótum hjá Söndru Hlíf á gömlu húsi á Bræðraborgarstíg sem hústökufólk hafði lagt undir sig eftir hrun.

  • S04E02 Sandra framhald

    • September 2, 2019
    • Sýn

    Við höldum áfram að fylgjast með hjá Söndru Hlíf sem er að gera upp hluta af húsinu sínu á Bræðraborgarstíg.

  • S04E03 Fannar og Jónína Þykkvibær

    • September 9, 2019
    • Sýn

    Jónína og Fannar keyptu hús langömmu Fannars í Árbænum. Þau hafa tvo mánuði til að breyta því áður en þau flytja inn.

  • S04E04 Fannar og Jónína framhald

    • September 16, 2019
    • Sýn

    Nú sjáum við lokaútgáfuna á breytingunum hjá Jónínu og Fannari í Árbænum. Nýtt skolp, gólfhiti, nýtt bað og kostnaðaráætluninni hefur verið hent.

  • S04E05 Magnús og Elísabet Stóragerði

    • September 23, 2019
    • Sýn

    Þau Elísabet og Magnús arkitekt hafa fest kaup á hæð í Stóragerði. Þau eru að mestu leiti sammála um breytingarnar en þó eru nokkur vafaatriði.

  • S04E06 Húsið Brenna byggt 1881

    • September 30, 2019
    • Sýn

    Húsið Brenna var byggt af tveimur steinsmiðum árið 1881 úr afgöngum og úr Alþingishúsinu að talið er. Húsið er friðað og í þættinum fylgjumst við með því komast í sína upprunalegu mynd.

  • S04E07 Einingahús Grindavík

    • October 7, 2019
    • Sýn

    Hjónin Alda og Grettir og börnin þeirra fimm ætla að byggja sér einbýlishús í Grindavík úr nokkrum krosslímdum einingum.

  • S04E08 Einingahús Grindavík framhald

    • October 14, 2019
    • Sýn

    Við höldum áfram að fylgjast með fjölskyldu Grettis og Öldu byggja 6 einbýlishús í Grindavík.

  • S04E09 Nína og Gísli Örn Sækambur

    • October 21, 2019
    • Sýn

    Nína Björk og Gísli Örn leikarahjóna hafa búið í húsinu Sækambur á Nesveginum í nokkur ár og nú stendur til að breyta því og hanna það að fjölskyldunni.

  • S04E10 Nína og Gísli Örn framhald

    • October 28, 2019
    • Sýn

    Lokaþátturinn af Gulla byggi í þessari þáttaröð. Gísli og Nína eru á lokametrunum og í kappi við tímann.

Season 5

  • S05E01 Binna og Arna á Refstöðum

    • April 27, 2020
    • Sýn

    Við fylgjumst með Binna og Önnu á Refstöðum flytja gömlu bátasmiðjuna í lögreglufylgd í tvennu lagi frá Akureyri og í Hálsasveit.

  • S05E02 Margrét í Álalind

    • May 4, 2020
    • Sýn

    Gulli byggir fylgist með Margréti rafvirkja standsetja þakíbúð í Álalind í Kópavogi. Margrét fær sér til aðstoðar nokkrar af vinkonum sínum sem margar eru lærðar húsasmiðir.

  • S05E03 Nína og Gísli

    • May 11, 2020
    • Sýn

    Í síðustu þáttaröð fylgdumst við með leikarahjónunum byrja að breyta húsinu sínu á Nesinu og nú er komið að því að flytja inn.

  • S05E04 Sumarbústaður í Grímsnesi

    • May 18, 2020
    • Sýn

    Gulli Byggir tekur að sér að smíða pall og skjólvegg við sumarbústað í Grímsnesi. Pallurinn er svolítið sérstakur að því leiti að hann verður flísalagður og festur niður með stálskrúfum.

  • S05E05 Binni og Anna á Refstöðum framhald

    • May 25, 2020
    • Sýn

    Í upphafi þessara þáttaraðar fylgdumst við með þegar gamla bátasmiðjan var flutt frá Akureyri yfir í Hálsasveit.Nú er komið að því að steypa gólf og innrétta húsið.

Season 6

  • S06E01 Næfurás

    • August 29, 2021
    • Sýn

    Matthías tekur í gegn Íbúð í Árbænum, nýtt bað og nýtt eldhús með flísalagðri borðplötu og bekkur og borð á svölum.

  • S06E02 Kofastríð 1

    • September 12, 2021
    • Sýn

    Leikararnir Jóhann G og Atli Þór kaupa sinn hvorn vinnuskúrinn og gera þá upp í görðunum hjá sér, annar verður menningarhús og hinn mótorhjóla geymsla.

  • S06E03 Kofastríð 2

    • September 19, 2021
    • Sýn

    Seinni hluti af Kofastíði þar sem leikararnir Jóhann G og Atli Þór kaupa sinn hvorn vinnuskúrinn og gera þá upp í görðunum hjá sér, annar verður menningarhús og hinn mótorhjóla geymsla.

  • S06E04 Básendi

    • September 26, 2021
    • Sýn

    Hjónin Hulda og Jón gera upp heilt hús við Básenda í Reykjavík. Upphaflega stóð til að mála einn til tvo veggi og flytja svo inn, en á endanum var allt húsið tekið í gegn.

  • S06E05 Þingholtsstræti

    • October 3, 2021
    • Sýn

    Gamalt hús við Þingholtsstræti í Reykjavík sem var farið að láta á sjá er tekið í gegn. Breytingin er Svansvottuð bæði þegar kemur að urðun og uppbyggingu.

  • S06E06 Fellsmúli / Mánagata

    • October 10, 2021
    • Sýn

    Hér fylgjumst við með tveimur ólíkum verkefnum, annarsvegar ódýrum en miklum útlitsbreytingum á íbúð í Fellsmúla og hins vegar kjallaraíbúð á Mánagötu.

  • S06E07 Skógargerði 1

    • October 17, 2021
    • Sýn

    Í Skógargerði stendur til að færa eldhús og baðherbergi á miðhæð, smíða svalir utan á húsið og taka garðinn í gegn, með tilheyrandi vandamálum og verkefnum sem þarf að laga.

  • S06E08 Skógargerði 2

    • October 24, 2021
    • Sýn

    Seinni hluti af Skógargerði en þar stendur til að færa eldhús og baðherbergi á miðhæð, smíða svalir utan á húsið og taka garðinn í gegn, með tilheyrandi vandamálum og verkefnum sem þarf að laga.

  • S06E09 Bolafjall

    • October 30, 2021
    • Sýn

    Útsýnispallur á Bolafjalli hefur vakið mikla athygli, hér fylgist Gulli með hönnun og byggingu á pallinum frá byrjun til enda. Útsýni í hæsta gæðaflokki.

Season 7

  • S07E01 Hófgerði

    • September 11, 2022
    • Sýn

    Ósk og Aron hafa fest kaup á hæð í húsi í Kópavogi nú stendur mikið til, hér á að gera hæðina eins flotta og hægt er með ódýrum hætti, mála, og breyttum lýsingu.

  • S07E02 Marbakkabraut fyrri hluti

    • September 11, 2022
    • Sýn

    Árið 2018 keyptu tvær fjölskyldur ónýtt einbýlishús á Marbakkabraut í Kópavogi, rífa það og byggja parhús og það á eftir að ganga á ýmsu. Gulli hefur fylgt ferlinu eftir í fjögur ár.

  • S07E03 Marbakkabraut seinni hluti

    • September 11, 2022
    • Sýn

    Framhald af Marbakkabraut. Samið við álfa og aðrar vættir og lekir gluggar og málaferli í uppsiglingu.

  • S07E04 Selbraut

    • September 18, 2022
    • Sýn

    Sirrý og Óskar keyptu sér raðhús á Seltjarnarnesi. Þau ætluðu fyrst bara að þrífa og mála en taka svo ákvörðun um að taka húsið allt í gegn, breyta baðinu, setja gólfhita og nýtt eldhús.

  • S07E05 Ölfus

    • September 25, 2022
    • Sýn

    Andrea og Tolli hafa átt þann draum í mörg ár að byggja sér hús í sveit og nú með því að kaupa lóð í Ölfusi rétt hjá Hveragerði ætla þau að láta drauminn rætast.

  • S07E06 Skógargerði

    • October 2, 2022
    • Sýn

    Í síðustu þáttaröð fylgdumst við með Dísu og Bigga taka húsið sitt í gegn og til stóð að laga garðinn. Það náðist ekki þá en nú verða steyptir skjólveggir og plan í Skógargerðinu.

  • S07E07 Stykkishólmur - fyrri hluti

    • October 9, 2022
    • Sýn

    Erlend hjón hafa fest kaup á lítilli jörð á Snæfellsnesi. Upphaflega stóð til að byggja lítið krúttlegt sumarhús en fljótlega fór þetta verkefni að vinda upp á sig.

  • S07E08 Stykkishólmur - seinni hluti

    • October 16, 2022
    • Sýn

    Framhald af Snæfellsnesinu. Litla krúttlega húsið á Snæfellsnesi hefur breyst í stórfenglegt hús á súlum sem minnir á haförn á flugi.

Season 8

  • S08E01 Sikiley

    • October 6, 2024
    • Sýn

    Uppbyggilegir og frábærir þættir í umsjón Gulla Helga sem leiðbeinir fólki, ráðleggur og fylgir eftir við hinar ýmsu heimilisframkvæmdir. Ekkert verkefni er of stórt og hér eru litið til lausna á frumlegan og skapandi hátt. Verkefnin eru af ýmsum toga og allt eru þetta krefjandi áskoranir og tekur oftar en ekki lengri tíma en fólk áætlar en verðlaunin eru gefandi í lokin.

  • S08E02 Útieldhús 1

    • October 14, 2024
    • Sýn

    Í þessum þætti fylgjumst með smíði útieldhúss.

  • S08E03 Útieldhús 2

    • October 21, 2024
    • Sýn

    Í þessum þætti fylgjumst með smíði útieldhúss.

  • S08E04 Kleifarkór

    • October 28, 2024
    • Sýn

    Í þessum þætti fylgjum hjónum eftir sem eru að byggja upp húsið sitt í Kleifakór Kópavogi eftir að það uppgötaðist mygla í húsinu.

  • S08E05 Frakkland 1

    • November 4, 2024
    • Sýn

    Í þessum þætti fylgjumst við með Íslendingi sem var að kaupa sér höll í Frakklandi.

  • S08E06 Frakkland 2

    • November 11, 2024
    • Sýn

    Í þessum þætti höldum við áfram að fylgjumst með Íslendingi sem var að kaupa sér höll í Frakklandi.

  • S08E07 Húsið á Hólum Snæfellsnesi

    • November 18, 2024
    • Sýn

    Í þessum þætti er haldið á Snæfellsnes þar sem við sjáum lokaútkomuna á hinu stórglæsilega húsi á Hólum sem er í eigu bandarískra hjóna.

Season 9

  • S09E01 Eldhús

    • October 16, 2025
    • Sýn

    Hvernig á að hanna eldhús

  • S09E02 Espilundur 1

    • October 23, 2025
    • Sýn

    Ung hjón taka í gegn heilt einbýlishús

  • S09E03 Espilundur 2

    • November 3, 2025
    • Sýn

    Ung hjón taka í gegn heilt einbýlishús

  • S09E04 Ása Ninna og Árni 1

    • November 10, 2025
    • Sýn

    Ung hjón ætla að rífa út af efri hæð og laga þak.

  • S09E05 Ása Ninna og Árni 2

    • November 17, 2025
    • Sýn

    Ung hjón ætla að rífa út af efri hæð og laga þak.

  • S09E06 Vestmannaeyjar 1

    • November 24, 2025
    • Sýn

    Húsið Suðurgarður í Eyjum tekið inn að beini og rúmlega það.

  • S09E07 Vestmannaeyjar 2

    • December 1, 2025
    • Sýn

    Húsið Suðurgarður í Eyjum tekið inn að beini og rúmlega það.

  • S09E08 Frakkland lokasprettur

    • December 8, 2025
    • Sýn

    Framhald af 2024. Höllin í Frakklandi í eigu Björns Björnssonar klárast.

Season 10

  • S10E01 Kaffivagninn

    • October 28, 2026

    Kaffivagninn tekinn í yfirhalningu

  • S10E02 Kotra 10 - AK City - Fyrri hluti

    • November 1, 2026
    • Sýn

    Einingahús í Eyjafjarðarsveit (fyrri hluti). Haldið er norður yfir heiðar, rétt fyrir ofan Skógarböðin í Eyjafjarðarsveit. Þar er fylgst með byggingu sérstaks einingahúss sem arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir hannaði.

  • S10E03 Kotra 10 - Seinni hluti

    • November 8, 2026
    • Sýn

    Einingahús í Eyjafjarðarsveit (seinni hluti). Framhald af framkvæmdunum í Eyjafjarðarsveit þar sem verkefnið er leitt til lykta með einstöku útsýni yfir fjörðinn.

  • S10E04 Bærinn Akur

    • November 15, 2026
    • Sýn

    Endurbætur og framkvæmdir í sveitinni.

  • S10E05 Flóttinn frá Grindavík

    • November 22, 2026
    • Sýn

    Fylgst með nýju upphafi og framkvæmdum eftir jarðhræringarnar.

  • S10E06 Sundlaug á Ítalíu

    • November 29, 2026
    • Sýn

    Gulli bregður undir sig betri fætinum til Ítalíu.

  • S10E07 Bæjargil í Garðabæ

    • December 6, 2026
    • Sýn

    Framkvæmdir á glæsilegu heimili í Garðabæ.

  • S10E08 100. þátturinn – Vindmylla í Vaðölduveri

    • December 13, 2026
    • Sýn

    Lokahnykkur seríunnar þar sem byggingu vindmyllu í Vaðöldu eru gerð skil. Þetta er jafnframt þáttur númer 100 hjá Gulla Byggi.

Additional Specials