Home / Series / Ímynd í nærmynd / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Ívar Brynjólfsson

    • February 6, 2025
    • RÚV

    Ívar Brynjólfsson lærði ljósmyndum í San Francisco og hefur lagt stund á það sem stundum er kallað myndlistarljósmyndun. Hann er þekktur fyrir að skapa nýja sýn á venjulega staði.

  • S01E02 Bára Kristinsdóttir

    • February 13, 2025
    • RÚV

    Bára Kristinsdóttir lærði ljósmyndun í Svíþjóð og kallar sig samtímaljósmyndara. Eftir hana liggur stórmerkilegt heimildaljósmyndasafn frá réttindabaráttu homma og lesbía frá níunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag.

  • S01E03 Sigurgeir Sigurjónsson

    • February 20, 2025
    • RÚV

    Ljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson nam ljósmyndum í Stokkhólmi og hefur komið að flestum tegundum ljósmynda – portrait, auglýsingum og blaðaljósmyndun. Síðustu ár hefur hann meðal annars tekið stórbrotnar ljósmyndir úr lofti af íslensku landslagi og gefið út í bók.

  • S01E04 Ben Hardman og Eydís Ólafsdóttir

    • February 27, 2025
    • RÚV

    Ljósmyndararnir Benjamin Hardman og Eydís María Ólafsdóttir einbeita sér að landslags- og náttúrulífsljósmyndun. Ben er frá Ástralíu og hefur tæplega eina milljón fylgjenda á Instagram og hefur haft ómæld áhrif á áhuga ferðamanna á Íslandi.

  • S01E05 Heiða Helgadóttir

    • March 6, 2025
    • RÚV

    Heiða Helgadóttir hefur lengi starfað við blaðaljósmyndun. Mannlífsmyndir hennar eru í senn nærgætnar og afhjúpandi. Hún tók þátt í merkilegu verkefni á vef Þjóðminjasafnsins þar sem kórónuveirutímabilið var skrásett með ljósmyndum.

  • S01E06 Katrín Elvarsdóttir

    • March 13, 2025
    • RÚV

    Ljósmyndarinn og listakonan Katrín Elvarsdóttir heldur mikið upp á plastmyndavélina Holgu sem býður oft upp á óvænta útkomu. Katrín vinnur myndir sínar gjarnan í tölvu og afraksturinn er oft nær myndlistinni en hefðbundinni ljósmyndun.

  • S01E07 Pétur Thomsen

    • March 20, 2025
    • RÚV

    Ljósmyndarinn Pétur Thomsen tekur meðal annars myndir af trjánum í garðinum sínum í Sólheimum og áhugaverðu landslagi. Ljósmyndaröð sem hann tók þgear Kárahnjúkar voru í uppbyggingu kom honum í fremstu röð.