Ási í Bæ (Ástgeir Kristinn Ólafsson) var landskunnur aflakóngur í Vestmannaeyjum. Hann var höfundur margra vinsælla laga og texta en einnig mikilvirkur rithöfundur. Hann segir sögur af sjálfum sér og mannlífi í Eyjum fyrr á tíð og syngur ásamt fleiri söngvurum eigin lög og texta en einnig eru fluttir textar hans við lög eftir Oddgeir Kristjánsson.