Í dag ætla þau Indiana Karítas Helgadóttir og Kiljan Valur Valgerðarson Holz að keppa við Daníel Snæ Rodríguez og Hildi Karen Jónsdóttur. Verkefni þeirra er að búa til ofurhetjubúninga og sögur um þær og fyrirsæturnar eru krakkarnir í klappliðunum þeirra. Hermikrákan og Hljóðkútarnir eru á sínum stað og að sjálfsögðu endar allt í slími - en hver er það sem endar í slíminu og tekst þeim að klára þetta risastóra verkefni?