Krakkarnir fá það svakalega verkefni að búa til skrímsli. Þau þurfa að velja einn úr klappliðinu sínu og klæða hann/hana í búning og semja svo sögu um þetta nýja skrímsli, og það allt á 10 mínútum. Stórhættulega spurningakeppnin er á sínum stað og að sjálfsögðu hermikrákan og hljóðkútarnir. Skaparar og keppendur: Harpa Hrönn Geirdal Helgadóttir Heimir Guðjónsson Kormákur Flóki Klose Arney Jóhannsdóttir