Home / Series / Örkin / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Þáttur 1

    • January 3, 2017

    Ný þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin.

  • S01E02 Þáttur 2

    • January 10, 2017

    Í þættinum fylgjumst við með hvolpinum Snæju taka þátt í hundasýningu. Hugum að selum í sjónum í Miðfirði. Hittum listakonuna Ingu Maríu sem sankar að sér dauðum dýrum. Heimsækjum landnámshænur í Breiðholtinu og rifjum upp hundahreinsunardaginn árið 1973.

  • S01E03 Þáttur 3

    • January 31, 2017

    Í þættinum hittum við Jóa Animal sem veit ekkert skemmtilegra en að vera í kringum skordýr. Við fylgjumst með kúnum á Ásólfsskála undir Eyjafjöllum fara í fyrsta skipti út í ferskt loft eftir inniveru vetrarins. Kynnumst Gígju Einarsdóttur dýraljósmyndara og förum á eyjuna Hvallátur á Breiðafirði en börnin á eyjunni eiga einstakt samband við æðarungana.

  • S01E04 Þáttur 4

    • February 7, 2017

    Við veltum fyrir okkur hvers konar hundur Sámur Gunnars á Hlíðarenda hefur verið. Spáum í dýrasiðfræði: Hvers vegna elskum við sum dýr en svo er okkur sama um önnur? Heimsækjum fjölskylduna í Stóru-Sandvík sem var að fá sér hvolp og hittum dýrateiknarann Jón Baldur Hlíðberg.

  • S01E05 Þáttur 5

    • February 14, 2017

    Við förum í heimsókn að Háafelli þar sem um 220 geitur búa. Hittum hænurnar á leikskólanum Laufásborg og dýrin sem búa á dvalarheimilinu Bæjarási. Skoðum nýjustu tísku í hundafatnaði og forvitnumst um gamla Sædýrasafnið í Hafnarfirði.

  • S01E06 Þáttur 6