Home / Series / Taka tvö / Aired Order / Season 2 / Episode 1

Sigurður Sverrir Pálsson

Í þessum þætti er rætt við Sigurð Sverri Pálsson kvikmyndatökumann. Sigurður Sverrir nam heimspeki við Háskóla Íslands og síðan kvikmyndagerð með sérstaka áherslu á kvikmyndatöku í London School of Film Technique þar sem hann útskrifaðist 1969. Hann réðst síðan til Sjónvarpsins og starfaði þar um árabil sem myndatökumaður, klippari og upptökustjóri. 1977 stofnaði hann kvikmyndafélagið Lifandi myndir ásamt félögum sínum Erlendi Sveinssyni og Þórarni Guðnasyni. Saman hafa þeir unnið fjölda stórra heimildamynda og má þar meðal annars nefna Verstöðina Ísland, Silfur hafsins, Lífið er saltfiskur og Íslands þúsund ár, en allar þessar myndir fjalla á einn eða annan hátt um sögu sjávarútvegs á Íslandi. Enginn íslenskur myndatökumaður hefur filmað jafn margar bíómyndir og Sigurður Sverrir, eða alls fjórtán talsins. Sú fyrsta var Land og synir frá 1980 og sú nýjasta er Kaldaljós frá 2004. Meðal annarra mynda hans eru Punktur, punktur komma strik, Útlaginn, Eins og skepnan deyr, Sódóma Reykjavík,

Íslenska
  • Originally Aired August 17, 2014
  • Runtime 46 minutes
  • Content Rating Iceland L
  • Network RÚV
  • Created February 20, 2026 by
    karirafn
  • Modified February 20, 2026 by
    karirafn