Í þessum þætti er rætt við Ara Kristinsson leikstjóra og tökumann. Ari nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og California Institute of the Arts, þar sem hann lagði einnig stund á kvikmyndanám. Ari myndaði heimildamynd Friðriks Þórs, Eldsmiðinn, og hefur síðan starfað sem myndatökumaður við fjölda íslenskra bíómynda. Hann á tvær bíómyndir að baki sem leikstjóri, Pappírs-Pésa frá 1990 og Stikkfrí sem frumsýnd var 1997.